26.8.2009 | 18:49
THE END
Stúlkurnar fóru til Íslands á sunnudaginn, gámurinn kom í gær og silgdi af stað til Íslands í dag.
Sjálfur sit ég nú á garðstól í tómu húsi, rétt eins og þegar þetta ævintýri hófst. Nú er því lokið og fer ég á mína 3ja vikna rotation 1 sept.
Reyni að selja bílinn þangað til, ef það gengur ekki þá fer ég með Norrænu 26 sept og kem til Íslands 29 sept með kaggann.
Þar sem þessu ævintýri er nú lokið þá er þessu bloggi lokið.
Þökkum vinum og vandamönnum sem kíktu við og þökkum fyrir alla aðstoð og góðar stundir á þessu rúma ári.
H & M & SKH
10.8.2009 | 14:02
Það styttist
Erum búin að vera í einmuna blíðu hérna í Hollandinu það sem af er ágústmánuði, okkur til mikillar gleði og ánægju. Erum ýmist við vatnið hérna í bænum eða á ströndinni, úti í garði að busla í einkalauginni okkar,nú eða í dýragarðinum í Amsterdam eða bara eins og okkur sýnist að vera það skiptið.
Vegna þessarar blíðu gengur hægara en ella að vinna við pökkun búslóðar, en þetta smá kemur og verður vonandi allt klárt þegar blessaður gámurinn kemur, en Eimskip varð fyrir valinu í þetta skiptið. Ég get ekki ímyndað mér að þeir standi sig verr en heilalausu fávitarnir hjá Samskipum, en spyrjum að leikslokum.
Vegna kreppu og drullu á klakanum þurfti að búa til meiri peninga og fórnin í þetta skiptið var einbýlishúsið hennar SKH, enda alveg nóg að halda úti 4ra herbergja íbúð á þessum smánarlaunum sem í vændum eru, og eru það helstu vinbrigði þessarar viku.
Sem sagt, só far só good og kannski kemur Hildur Grrrr... hingað með karlinum næstu helgi, vonum það.
1.8.2009 | 07:05
2ja ára afmæli
Hún Sóley Kristín á afmæli í dag, hún er tveggja ára og aldrei verið sprækari, enda nýmætt á svæðið með mömmu sinni, nánar tiltekið í eftirmiðdaginn í gær.
Það var haldin afmælisveisla á klakanum m.a. vegna þess að fyrirhugaðir afmælisgestir hérna í Hollandi eru tvístraðir út um allar jarðir, en oft er fámennt góðmennt og við gerum það besta úr þessu öllu saman.
Veðrið er ljúft, kannski sundlaugin verði notuð annan daginn í röð hérna úti í garði, pulsugrill og vöfflur og auðvitað einhver kökuveilsa er planið í dag. Ekki endilega í þessari röð samt...Mynd af afmælisgjöf SKH kemur hér inn þegar hún er komin í eigendans hendur.
Biðjum að heilsa og óskum ykkur sem og afmælisbarninu okkar innilega til hamingju með afmælið....
Vinir og fjölskylda | Breytt 3.8.2009 kl. 12:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
26.7.2009 | 09:43
Sumarfrí
Eftir 3ja mánaða törn er húsbóndinn kominn í sumarfrí, langþráð að einhverju leiti.
Sumarfríið fer þó í að pakka niður, selja bíl, hjól og fleira stuff sem óþarft er að taka með sér heim á klakann ásamt allri þeirri skipulagsvinnu sem fylgir svona ævintýtum.
Dömurnar koma hingað út 31 júlí þannig að afmælisveislan hennar Sóleyjar verður 1 ágúst hérna í Hollandinu, maður verður að fara að baka kökur og kaupa kakó til að þetta verði nú alvöru.
En sem sagt, línuþjálfun lauk í gær, fer á mína fyrstu 3/3 rotation 1 september og mér skilst að USA sé destination til að byrja með.
Bið að heilsa í bili, set hérna eina mynd af karlinum á nýja fararskjótanum.
14.6.2009 | 22:25
Með láði...
Kallinn er laus, lendingar á þriðjudag, sit inn á morgun v óviðránalegra orsaka, heim á fimmtudag, smá frí, línuþjálfun... marstering til 747-400.
Eina leiðin...
10.6.2009 | 00:49
Blahhh...
7.6.2009 | 19:20
Vika eftir
Þá er farið að styttast í annann endann hérna í Luxemburg. Það er vika eftir, 3 simmar eftir til að troða þessu öllu í hausinn á okkur, svo taka prófin við.
Eg veit ekki betur en að þessi herlegheit klárist 15 júní og ég er búinn að biðja um amk viku frí enda er stóðið á leiðinni út til Hollands.
Rigning síðustu daga hérna svo að joggið í pásu (léleg afsökun), en það verður tekið á því af fullri hörku þegar þetta námskeiðarvesen er frá...
Annars ekkert að fretta...
31.5.2009 | 14:26
Heyrst hefur...
.. að fjölskyldan flytji heim frá Hollandi í semptember, því að það er svo hagstætt..
.. að búið sé að skrá Hjalta á dansnámskeið sem hann samþykkti að fara á því að búingurinn sé svo flottur
.. að Maja og Hjalti muni túra um vestfirðina með danssýningu
.. að Hjalta gangi vel í simmanum í Luxemburg (só far amk)
.. að vigtin sé að stíga uppávið hjá Hjaltanum vegna námskeiðahalds
.. að Hjalti hafi fest kaup á eyju í Karabískahafinu fyrir gróðann við að flytja af klakanum í eitt ár
Hér má sjá búninginn sem fékk Hjalta til að fara í dansskóla
Hver hefur eitthvað á móti því að klæða sig í bóluplast?
Þetta er töff...
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 16:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
29.5.2009 | 07:53
Til hamingju fíflin ykkar...
Aldrei hef ég bloggað á fréttr áður, enda er þetta blogg er ekki fréttatengt blogg, en ég get ekki annað en óskað fíflunum til hamingju sem brostu út í hafsauga þegar nýja "frábæra" ríkisstjórnin tók við völdum. Hún er algerlega ráðalaus og augljóst að við, þ.e.a.s. landinn, fær það skemmtilega verkefni að borga fyrir kókaín- og frekjuhrokaflipp auðmanna.
Ég er ekki frá því að smygl við strendur Íslands eigi eftir að taka stórstígum framförum þó ekki væri nema í magni á áfengi og tóbaki vegna þessa, og svo auðvitað heimabruggið.... Ef einhver er að smygla benzíni til landsins, endilega sendið mér númerið svo að ég geti keypt og haft efni á að reka bíl þegar ég flyt heim...
Andskotans helvítis fokking fokk
|
Mjög óvinsælar aðgerðir |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |



rindpoop
sax
aslaugh
joningvar




